|
01.07.2009 10:07:55 / villirofa
Nú á ég eftir að vinna eina helgi og svo er ég komin í sumarfrí. Best að ég fari nú að ákveða hvað ég ætli að gera í sumarfríinu því annars fer það bara í heimilisstörf...Annars hef ég verið dugleg við að nýta þennan lúxus sem við höfum yfirsumartíman það er löngu sumarkvöldin. Ég hef leyft Hólmfríði að vera úti að leika lengur, við höfum verið að fara í hjólaferðir eftir kvöldmat, fór um daginn t.d. þá sofnaði Elísa bara í hjólavagninum. Í gær fórum við svo nokkur systkinin með börnin í sund eftir kvölmat og það var nú aldeilis stuð.
»
01.07.2009 09:58:36 / villirofa
Eftir þriggja mánaða bið var loksinns komið að því að koma stelpunni (eldri) til augnlæknis. Hún var ótrúlega dugleg og samvinnuþýð hjá augnlækninum en mér brá samt smá við úrskurðin: hún er með sjón upp á + 4 á hægra og + 2,25 á vinstra. Sem sagt sér bæði illa og er með sjónskekkju. Svo nú er bara að fara velja einhverja krúttlega gleraugnaumgjörð og venja hana við að ganga með gleraugu. Kannski að ég fari að setja mín upp oftar svona til að sína smá samstöðu En það var nú annað sem gerðist þennan sama dag: það var nefnilega þannig að síðan í apríl hefur stúlkan verið að keppast við að reyna að hjóla án hjálparadekkja og í dag tókst það loksinns (kannski að sjónskerðingin hafi eitthvað að segja með það hve lengi hún hefur verið að ná þessu) en í dag var sko farið til vinkvenna sinna tveggja og allar fóru þær út að hjóla saman. Og til að toppa daginn þá pissaði litla stúlkan í fyrsta sinn í koppinn fyrir mig. Nóg að gerast á Grandaveginum.
»
21.06.2009 09:41:53 / villirofa
Gummi á Lindabrautinni stóð fyrir fjölskydluferð á Helgafellið í gær. Við Ingi mættum með dæturnar og Dag. Það var svo sem engin veðurblíða, rok sem olli sandfoki á köflum og maður hélt ósjalfrátt fast í litlar hendur. 1 árs dóttirinn fékk ekki að stoppa nema 10 sekúndur á tindinum og þá var faðirinn rokinn með hana aftur niður og stoppaði ekki fyrr en við bílinn. En upp fórum við öll og gangan var ánægjuleg eins og er svo oft. Ég er mjög stolt af Hólmfríði Erlu sem fór alla leið sjálf upp, í ferðinni var líka önnur fimm ára stelpa sem skokkaði þetta líka eins og ekkert væri.
»
21.06.2009 09:19:24 / villirofa
Já það hefur sem sagt verið rólegt undanfarið og ég hef lokið fyrstu bókinn á þessu ári. Ég hef alltaf haft rosalega gaman af því að lesa bækur, þegar ég var yngri kepptist ég af að klára hverja hillu af fætur annarri á bókasafninu. Nú er tíminn minni og sjónvarpið og svefninn hafa oftar sigur úr bítum en bókin. Allavega ég fékk lánaða hjá vinkonu minni Þúsund bjartar sólir eftir Khaled Hosseini og sú bók olli mér ekki vonbrigðum eða allavega ekki bókin sem lesning en það má alveg segja að raunveruleikin á bak við hana hafi ollið mér vonbrigðum. Því raunveruleikin sem bókin gerist í er svo svakalegur, ég var eiginlega í þörf fyrir áfallhjálp eftir að hafa lesið bókina. Mikið er maður nú heppinn að vera fæddur á litla sæta Íslandi þar sem ekki er stríð og konur halda upp á 19. júní. Reyndar upplifði ég 19. júní þannig að konur voru ekki að halda upp á hann, svo sjálfsögð eru þægindi okkar og lífsgæði. Konur sem halda upp á daginn eru jafnvel litnar hornauga og kallaðar rauðsokkur, öll þessi barátta okkar um jafnrétti er sögð vera komin út í öfga. En annar staðar í heiminum er þetta ekki svona, annars staðar í heiminum fæðist stelpa og hlutverk hennar frá fæðingur er að vera undirlát og þjóna karlmönnum. Hún er réttindarlaus og alltaf í öðru sæti. Hún hefur jafnvel ekki rétt á læknisaðstoð og verkjalyfjum. Ennþá er barist í og sprengt í Afganistan mánaðarlega birtast fréttir af fjölda fallinna í sprengjuárásum og ennþá eru konur þar yfirbugaðar og þurfa að lúta lögum eins og þeim að þær mega einungis fara út í fylgd karlmanns. Ennþá eru refsingar þar svo harðar að fólk er líflátið af tilefnislausa af okkar mati t.d. var í fréttunum um daginn ungt par sem var líflátið fyrir að hlaupast á brott saman. Nú eru kosningar í gangi í Afganistan, konur sem bjóða sig fram eru sagðar í bráðri lífshættu. Kveðja og þökk sér það að ég veit að dætur mínar geta orðið allt sem þeim dettur í hug.
»
21.06.2009 08:21:21 / villirofa
Það má segja að þegar maður er aftur orðinn útivinnandi mamma að þá er ekki mikill tími eftir í eitthvað dútl eins og að blogga, lesa blogg. Facebook kom líka sterk inn, en eins og staðan er í dag hef ég ekki heldur opnað hana í meira en mánuð. Ég er nefnilega þannig eins og svo margir vita að þegar kyrrð er komin á og ég ætla að nota tíman til að fara í tölvuna, þá er hann ekki mikill því fyrr en varir þá....sofna ég  En ég sakna þess að blogg, svo nú fer að líða að sumarfrí og aldrei að vita nema ein eða tvær færslur birtist á skjánum. Kveðja Sigrún
»
24.12.2008 09:33:59 / villirofa
Aðfangadagur er genginn í garð, jólin eru kominn. Tilhlökkun gleði og hamingja ríkir, eða á allavega að ríkja. Á mínu heimili á það vel við ég er orðin spennt og farinn að hlakka til að klæða mig og dæturnar í fín föt, kíkja í barnamessu, borða góðan mat og opna gjafir. Í morgunn reikaði hugurinn samt víða Ég hef verið í vinnunni undanfarna daga, verandi í andyri sjúkrahúsinns veit ég að ekki eru allir jafn lánsamir og ég. Ég veit að fólk slasast og veikist jafnt á jólunum og aðra daga. Það eru fjölskyldur sem í dag þakka fyrir að börnin þeirra séu á lífi eftir að hafa skyndilega þurft að horfa á þau berjast fyrir lífi sínu. Aðrar fjölskyldur eru að halda fyrstu jólin eftir að hafa misst barnið sitt á árinu. Amman sem var svo hress fyrir mánuði er nú dáinn eða deyjandi. Utigangsmaður einn heldur frekar jólin í gistiskýlinu en hjá dóttur sinni af því að hann átti ekki pening í gjafir handa barnabörnunum og fannst hann ekki geta komið í mat án þess að færa þeim neitt. Já lífið og lukkan eru misjöfn. Í kvöld ætla ég að setjast niður og njóta alls þess sem jólin hafa upp á að bjóða, njóta þess að nú er tími til að gera sig fína fyrir fjölskylduna og eyða tíma og gleði með henni og ég þakka guði fyrir að hafa tækifæri til þess.
Bestu óskir um Gleðileg jól.
»
20.05.2008 23:14:02 / villirofa
Jæja maður verður nú að segja þessari stóru stund. Var náttulega vöknuð á undan vekjaraklukkunni í morgunn, Elísa Nótt einnig eitthvað aðeins að rumska en þáði snuðið og kúrði aðeins lengur (sefur núna alla nóttina í sínu rúmi). Svo var bara farið á fætur og gert sig klára af stað, Elísa vöknuð áður en ég fór svo ég hitaði pelan það kom smá hik á hana þegar valið var eiginlega mamma eða pelinn en morgunþorstinn hafði yfirhöndina og ég skildi hana eftir sötrandi pela í fangi föður síns. Hjólið tekið út, logn og bjart úti, svo hjólatúrinn var vel heppnaður, skilaði mér allavega á áfangastað á réttum tíma þrátt fyrir að þolið er kannski ekki alveg eins og áður. Mundi fatastærðina mína, mundi meira segja talnakódan í búningsherbergið. Afskaplega vel tekið á móti mér svo þetta var bara eins og að vera komin heim, hjúkkan í mér var líka ekkert að láta bíða eftir sér sinnti mínum súklingum með sæmt og allar stungur í dag gengu fyrir sig eins og ég hefði aldrei farið. Hugurinn reikaði þó nokkuð oft heim en ég hringd bara einu sinni að heyra hvernig gengi. Vaktin var svo kláruð og vinnudagurinn endaður í hjólatúr heim í logni og sólskini. Þegar heim var komið tók reyndar á móti mér grátandi ungabarn sem var farið að lengja all verulega eftir mömmuknúsi. Svona lífið, svo er bara aftur að mæta á morgunn.....
»
17.05.2008 22:25:10 / villirofa
Meðganga ----- LOKIÐ Fæðingu--------LOKIÐ Fæðingarorlof- LOKIÐ
Já, barnið er orði sjö mánaða, núna er ég í sumarfrí en ekki lengi ég er að fara í vinnuna á mánudaginn. Ég mamman, þarf eftir níu mánaða frí (hætti svolítið snemma að vinna) að skipta um fasa skilja mömmuna eftir heima, grafa upp hjúkrunarfræðinginn, mæta í vinnuna. Kannski hitti ég Sigrúnu á leiðinni hver veit... Fer samt frá barninu með góða samvisku, það verður áfram heima, bara hjá pabba en ekki mömmu. Hef samt síðustu daga verið að halda aftur að mér, fundist ég þurfa að semja heilt námskeið fyrir hann; barnauppeldi og heimilisstörf 104 (vissulega fjögra eininga námskeið). Efnisþættir ættu að vera; öryggi og slysavarnir barna, Matur ungbarn; heimatilbúinn matur, hollur matur, hvaðan kemur járnið, hvernig mjólk á hún að fá. svefn ungbarna, halda reglunni.!!!! uppeldi; kann ýmis góð ráð sem virka vel á Hólmfríði, Heimilistörf; eldhúsið, þvotturinn og allt hitt. Verð núna í dag að bæta við einum þætti það er börn og veikindi, þvi fyrsta vikan mun ekki verða honum auðvelt. Elísa var að byrja með hlaupabóluna í dag þannig að eftir 2-5 daga verður hún líklega lasin.
»
11.05.2008 07:55:22 / villirofa
Það er margt sem maður spáir í í lífinu, eitt af því er hvenær verður maður fullorðinn, hef verið að velta þessu fyrir mér og hér eru nokkrir punktar:
- Þegar þú uppgvötar að það eru liðnir meira en tveir mánuðir síðan þú fórst síðast út að leika þér
- Þegar hárið er farið að grána
- Þegar þú er farinn að horfa á fréttirnar og kastljós á kvöldin
- Þegar þú er farinn að sofa klukkan tíu á kvöldin
- Þegar þú ert farinn að hafa áhyggjur af verðbólgunni
- Þegar þú hefur átt eitthvað af fötunum þínum í meir en tvö ár og þau eru ennþá í notkun
- Þegar þú ert farinn að líta á kynlif sem sjálfsagðan hlut í tilverunnni
Þegar þú ert oftar farinn að heyra mamma/ pabbi heldur en nafnið þitt
»
04.03.2008 12:24:02 / villirofa
ohh. ekkert lát á kvefinu, við bætist hiti og hósti. Í dag byrjaði dagurinn á heitri sturtu eftir að hafa kófsvitnað í nótt, svo var farið fram í eldhús hitað vatn og drukkið paracetamol hot; hitinn rauk úr, höfuðverkurinn á brott og drykkurinn yndislega hressandi þar sem hann rífur vel í. Nú var ég tilbúinn að takast á við daginn. Hérna eru nokkrir punktar: VILDU GERAST MAMMA YNDISLEGA GEFANDI STARF Í BOÐI. STARFIÐ ER FÓLGIÐ Í DAGLEGRI UMÖNNUN BARNS, ÞAÐ FÆDD OG KLÆDD OG LEIKIÐ VIÐ ÞAÐ. EINNIG ER KRAFIST AÐ UNNIN SÉU ÝMIS VERK INNNAN HEIMILISINNS S.S. ELDAÐUR MATUR, SÉÐ UM HEIMILISÞVOTTINN OG HEIMILINU HALDIÐ HREINU.
KJÖR:
* STARFIÐ ER LAUNAÐ Í SEX MÁNUÐI, EF ÞÉR LÍKAÐ ÞAÐ VEL ER GÓÐUR MÖGULEIKI Á AÐ VERA RÁÐINN Í SJÁLFBOÐAVINNU * UNNIÐ ER SAMFLEYTT Á ÖLLUM VÖKTUM (morgun, kvöld og nætur)
* VEIKINDA DAGAR ERU EKKI Í BOÐI
* EF TEKIÐ ER FRÍ Í VINNUNNNI VERÐUR STARFSMAÐUR AÐ GREIÐA FYRIR AÐ VERA Í FRÍI
»
02.03.2008 10:31:22 / villirofa
Kominn tími til að blogga smá um fjölskylduna
Nú er sunnudagsmorgunn og við mæðgur kúrum allar saman í stofusófanu. Hólmfríður að horfa á sjónvarpið og borða íþróttanammi ( epli, morgunkorn, rúsínur og döðlur í skál) Elísa Nótt að lesa (meira að borða) einhvern bækling og ég í tölvunni. Við erum allar kvefaðar og ég með hálsbólgu og Hólmfríður hóstandi, svo líklegast tökum við því bara rólega í dag. Elísa Nótt dafnar vel, er að verða fimm mánaða, farinn að skoða dótið sitt, velta sér fram og til baka og byrjuð að borða graut á kvöldin. Hún hefur verið svolítið kröfuhörð á næturnar, var farinn að vakna oft og fá oft að drekka. Svo núna er ég farinn að gefa henni graut og er að reyna að venja hana af því að vakna og sofna við brjóst. Virðist þurfa ennþá sopa um fjögurleitið. Hún sefur ennþá þrjá dúra yfir daginn en ég held að það fari að breytast fljótlega og tveir fari að nægja. Í dag er ég t.d. mjög vel útsofinn þurfti bara að vakna tvisar sinnum til hvorrar (Hólmfríður verður geggjað pirruð á næturnar þegar hún er kvefuð, þolir ekki hor að leka niður). Hún er frekar háð mér, get ekkert látið passa hana, svo einu skiptin sem ég á frí er þegar hún er sofandi. Hólmfríður Erla fer bráðum að verða fjagra ára. Hún stendur sig ágætlega sem stóra systir, sýnir litlu systur mikla athygli, kannski einum of mikla stundum því hún vill helst vera að hnoðast með hana. Henni finnst mjög gaman að spila og leika með dúkkurnar sínar, svo á hún orðið góðar vinkonur og þær eru farnar að skiptast á að heimsækja hvor aðra. Ég hef það fínt. Finnst miklu muna að eiga nokkrar kunningjakonur sem eru nágrannar, get skropið í næsta hús í kaffi, engin fyrirhöfn. Hittumst líka stundum úti á róló með stelpurnar. Núna er bara einn mánuður eftir af formlegu fæðingarorlofi, svo nú er ekki seinna vænna, verð að fara að skipleggja næsta skref.. Kveðja og njótið sunnudagsinns.
»
20.02.2008 21:25:34 / villirofa
Las í blaðinni í dag af Siv Friðleifsdóttir og Jóhanna Sigurðardóttir hafa áhyggjur af vinnu barna, og það á að fara að kanna hvort börn séu nokkuð að vinna af mikið. Mér finnst þetta æðislegt er alls ekkert hlynnt barnaþrælkun. En ég verð þó að segja að ég hef nú meiri áhyggjur af því að börn vinni of lítið. Það væri gaman að gera rannsókn á 16 ára krökkum og sjá hversu mörg þeirra hafa eitthvað unnið... og hversu mörg hafa einhvern tíman þurft að bera ábyrgð á einhverju.
»
15.01.2008 23:49:58 / villirofa
Var mikið að velta lífinu fyrir mér í dag, þessu dagsdaglega stússi og almennum líðan. Upp kom í hugan orðið stjórnun, fyrir mig skiptir rosalegu máli að finnast ég hafa einhverja stjórn á hlutunum, stundum hef ég hana ekki og þá líður mér illa. Stundum gengur þetta vel stundum illa. Stundum finnst mér eins og ég stjórni ekki neinu heldur snúist í hringi í kringum alla og allt. Ég er með sjúkdóm sem stjórnar mér á hverjum degi, ég get ekkert gert, ekkert planað nema taka tillit til hans, svo bætist við ungabarn og þar er sama sagan allt plan dagsinn stjórnast af henni; hvað get ég gert meðan hún sefur, hvað get ég gert meðan hún vakir. Svo er eldri stelpan og enn og aftur er málið hvað næ ég að gera meðan hún er í leikskólanum, hvað get ég gert með henni þegar hún kemur heim. Hver stjórnar? Er ég með stjórnina á þessu öllu eða stjórnar þetta allt mér?
»
15.01.2008 23:34:25 / villirofa
Aukakílóinn, aukakílóinn út um allt á mér... Eins og margar aðrar mæður nýbúnar að eiga lítinn unga, er ég allt of þung. Var kominn á gott skrið í líkamsræktinn og áteftirlitinu fyrir áramót. Líkamsræktin var undir ströngu eftirliti hjá einkaþjálfaranum mínum Ágústu Johnson sem ég lét birtast á sjónvarpskerminum 5x í viku og hún sagði alltaf “ekki gefast upp þetta ber árangur!” Áteftrilitið var eftirfarandi: Borða minn í einu Ekki borða standandi Ekki borða meðan ég elda matinn Ekki borða afgangana Borða meira af grænmeti og ávöxtum, minna af brauði og þetta var farið að bera árangur. En svo hætti ég yfri hátíðirnar og nú er ég í þunglyndiskasti yfir að vera ekki byrjuð aftur...veit ekkert sem dregur mig eins mikið niður eins og að hugsa á kvöldin ég er ekkert búinn að hreyfa mig í dag og ég teygji mig upp í skáp og fæ mér súkkulaði...haldið að það sé nú bilun.
»
06.01.2008 11:07:31 / villirofa
Hvað gerir þú ef það stendur í barninu þínu? Ef aðstandandi þinn hnýgur skyndilega niður? Ef barnið þitt fær höfuðhögg? Langar þér/ eða þínum hóp (saumaklúbb, mömmuhópur o.f.v.) að fá skyndihjálparnámskeið? Tek að mér ýmiskonar fræðslu um skyndihjálp: hef 10 ára reynslu í að kenna skyndihjálp, auk þess að vera hjúkrunarfræðingur og starfa á slysadeild. Hugmyndir: 1 klst. kennsla og umræður um: Endurlífgun barna Rýnt í sjúkratösku heimilisinns; hvernig á að nota það sem er til, hvað er æskilegt að eiga Slysavarnir barna Brot og tognanir Sár og sárameðferð Aðkoma að umferðaslysi 4 klst námskeið Almenn skyndihjálp fullorðna Almenn skyndihjálp barna Endurlífgun barna og fullorðna frá A - Ö Einnig hægt að koma með sér óskir um áhersluatriði. Endilega hafið samband; igrunp@simnet.is">sigrunp@simnet.is
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|